Interrail 2006 | |||||
tag.
|
![]() Monday, March 27, 2006<begga>Enn einn eftirmiðdagurinn þar sem eftir miklar pælingar, vefleit og kjánalega brandara. Og viti menn...enn einn listinn komin niður á.. .erm... einhverskonar blað pappírsviðbjóð sem er oftast aftan á skyssubókin til stuðnings..svona gráleitur og skrítin. Sem fær dagmar til að fá klígju þegar hún notar skrúblýant á hann. Enn já...vorum í hostel leiðangrinum mikla. Verðin voru misjöfn og mismikið af framboði. Er enn að hugleiða hvort við ættum að gista í efnisverksmiðju þar sem við gætum verið dregnar fram úr maðkétna trékojjunum okkar og neyddar í strikakjóla inn í verksmiðjuna til að vinna fyrir hinum partinum af gjaldinu sem stóð í fína letrinu neðst á innskráningsblaðinu. Veit bara fyrir visst að maður á ALDREI að treysta ljósmyndum sem maður sér af gististöðum og öðru sem maður fær ekki að sjá fyrr enn maður lætur vaða og er byrjaður að ferðast... það mikið hef ég lært af kjánalegum fjölskyldugrínmyndum!!!! Á öðrum nótum þá á næstu dögum látum við vaða og skráum niður gistingu okkar á þessari dýrindisferð okkar. Þá megið þið vonast til að sjá ferðaplan okkar, eða hvaða borgir við förum til, og hva marga klst það tekur að ferðast á milli borga. Við höfum líklega sleppt grikklandi þar sem það tekur 20klst að komast til Aþenu (ferja og svo lest) og svo sama tíma að komast tilbaka. þessvegna höfum við kellur ákveðið að frekar skella okkur í spes GrikklandsFerð eitt sumarið þar sem við getum baðað okkur í grískri menningu mat og kannski erlendu fersku lambakjöti ;) if you catch my drift Sjálf er ég að reyna plotta hvernig ég get safnað sem Mest af pening fyrir þessari ferð sem fyrst þar sem ég hef aðra ferð planaða í haust, enn það verður Verslunarferð DAUÐANS í þeirri einu sönnu verslunarmiðstöð MALL of AMerica sem ég hef heiðrað með náveru minni tvisvar áður. Hingað til er ég komin með 50.þús safnað ef orlofið er talið með, og það er útborgun í þessari viku! ^_^ ef þetta heldur áfram svona vel þá verð ég búin að safna fyrir öllu FYRIR sumarvinnuna og get tekið þann pening frá fyrir verslunarferðina! Ó! og eitt annað... næsta vor fer ég að sjálfsögðu í útskriftarferð og pælingin hjá hópnum er Mexícó svo mín verður líka að safna fyrir því! Jísús.. það er aldeilis hvað ég er að fara út á þessu næsta 1 1/2 ári! ÉG! manneskjan sem fór fyrst til útlanda 12ára og þá var ég fílu endalaust og hékk inni því ég hafði aðrar pælingar varðandi frí heldur enn fjölskyldan mín(hjá þeim var það að versla föt og sitja í sólbaði allan daginn... sem var ekki mín pæling þar sem ég HATAÐI að versla og liggja og gera ekki neitt á þeim tíma...og er býbyrjuð að fíla :P !) Enn já.. eg ætla að hætta jarminu og leyfa ykkur aðhalda áfram að læra/vinna/eða annað dónalegt stöff sem þið perrarnir gerið á netinu! you should be ashaaameed of yerselfs! ú!! Eitt að lokum! . </begga> Cilitra { 00:30 }
1 comments
Hvað að lokum?? og já mall og america vá hvað ég fet ekki beðið nammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm kaupa glæ ný fött fyrir ferðina okkar jóhönnu jeii
#
@ 12:34
Post a Comment
|
archives.February 2006March 2006 April 2006 May 2006 June 2006 July 2006 August 2006 InterrailHostelStúdentaferðir Lestir à Evr. EasyJet flug British Airwaves flug utanskrÃkisráðuneytið Lonely Planet Lest-ÃtalÃa Lest-Spánn Lest-Portúgal Lest-Grikkland lest-SlóvenÃa Port Aventura Annað.Artsy Gallerý BegguNeopets -varúð..gæti verið addictive!) Leikir anyone? credits.design by xtrasiaopowered by TagBoard Message Board blog hosted by Blogger | |||
|
copyrights xtrasiao.inc 2004-2005 | |||||