Interrail 2006 | |||||
tag.
|
![]() Monday, February 20, 2006<begga> Textinn hefur verið lagaður, tíminn stilltur og nú á bara eftir að hana einhverja skemmtilega mynd fyrir síðuna í stað sofandi ketlingsins. Er bara ansi stolt af að hafa komið þessi blogg upp svona snemma ^_^ þá getur maður komið niður á "blað" og á einn stað allar upplýsingar varðandi ferðina, ferðaleiðir, pökkunarlista, og svoleiðis hluti. Annars höfum við Dagmar ekki hætt að tala um þessa ferð frá því fyrir tveimur vikum síðan þegar það datt út úr mér að mig hefði alltaf langað eða öllu heldur forvitnast um bakpokaferð um evrópu. Hún næstum hoppaði af spennu og sagðist hafa dreymt um að fara í gvuuuuð veit hve langan tíma. Eftir það hefur spennan magnast, og undirbúningur farið á fullt og Dagmar ekki leyft mér að skipta um skoðun ;) Vorum alla helgina í vinnunni að tala um ferðina, hvað okkur vantaði, hvaða staði við vildum skoða etc hvenær sem tækifæri gafst. Og tilhugsunin að fara bara tvær er ekkert svo óhugnaleg....allaveganna þegar ég blocka allar þær scary staðreyndir um ferðalög sem foreldrar mínir hafa nelgt inn í hausinn minn(:"traveling alone from home is bad.. bad people are outside Iceland..fear it... be afraiiiiiid!") Við höfum ákveðið hvaða svæði við ætlum að taka og eru þau eftirfarandi Lönd:Spánn, Portúgal, Ítalía, Grikkland og Slóvenía í 22.daga. Tímabil: tvær seinni vikur júlí, fyrsta vika ágúst. Dagmar er með detaild upplýsingar varðandi flug sem ég býst við að hún hendi inn seinna í vikunni. Fundum nefnilega þetta ódýra flug þar sem við lendum í madrid og getum þá farið þaðan til Ítalíu og endum svo einhvernveginn aftur í madrid til að ná flugi heim. Svo ég hef ákveðið að henda inn tillögu að pökkunarlista sem við fundum á Exit.is. Svo við Dagmar getum haldið Utan um það sem er komið er ég komin með kerfi. Strikað verður yfir hluti, þeir sem við erum búin að redda fær bókstaf hvorrar manneskju fyrir aftan eftir því hver er búin að redda sér hverju. Enn svo eru hlutir á þessum lista sem við þurfum ekki og sá hlutur fær bara strik yfir sig og engann bókstaf fyrir aftan. B fyrir Beggu, D fyrir Dagmar...(duh) Pökkunarlistinn -workinprogress- o 2 stuttbuxur o 3 pör af sokkum o 3 T boli o 4 nærbuxur(WTF?!?!) o 1 síðar buxur o 2 langerma skyrtur/blússur o 1 góða peysu o Regn og vindjakka o Góða gönguskó o Sandala (fætur þurfa loft) o Lítinn Bakpoka o Magatösku fyrir peninga o o o Handklæði o Smá þvottaefni o Vasahníf og dósaopnara o Bolla, krús og skeið o Varasalva o Sólkrem og smokka o Nál, tvinna og lítil skæri o Talkúm (þú gengur mikið) o Tannbursta, tannkrem, tannþráð o Sjampó o Magatöflur, verkjatöflur o Klósettpappír o Gjaldeyri, greiðslukort o Vegabréf og ISIC/IYTC skírteinið o Vasabók eða dagbók og penna o Gott Evrópukort og ferðabók o Myndavél og filmur o Interrail kort o Afrit af ferða- og slysatryggingu o Kannski Línuskauta (ferð fljótar yfir) o Hatt!!!!(bætt við af Beggu) o Flísteppi(bætt við að Beggu) Svo eigum við eftir að ákveða nákvæmari lista sem hentar okkur og okkar svæðum best. Enn miðað við tímabilið sem við förum þá tel ég okkur þurfa stuttbuxurnar nauðsinlega þar sem ég held að júlí/ágúst sem eitt af heitari tíma sumarsins! SPurning svo hvað þetta verður allt þungt og svoleiðis. Við ætlum ekki að taka með okkur svefnpoka þar sem flest farfuglaheimili bjóða upp á herbergi með innf. svefnpoka og kodda, enn tökum með okkur flísteppi til öryggis. </begga> Cilitra { 14:39 }
3 comments
hæhæ stúlkur mínar og til hamingju með síðuna!!!!!:) ég segi bara það sama, hún Dagmar hefur ekki hætt að tala um þessa ferð síðan ég bara veit ekki hvenær!!!!! og við fáum að vita eitthvað nýtt á hverjum degi, sem er bara gaman. Enjá þessi innpökkunarlisti!! uhumm mæli með aðeins fleiri nærbuxum sko!!!! maður veit aldrei hvaða slys geta orðið heheh djók:)
#
@ 16:21
ákvað að gera ein færslu í viðbót því að Dagmar var svo spennt yfir hversu margir væru búinir að kommenta á nýju síðuna....hehe
#
@ 16:22
....hehehehe
#
@ 16:22
Post a Comment
|
archives.February 2006March 2006 April 2006 May 2006 June 2006 July 2006 August 2006 InterrailHostelStúdentaferðir Lestir à Evr. EasyJet flug British Airwaves flug utanskrÃkisráðuneytið Lonely Planet Lest-ÃtalÃa Lest-Spánn Lest-Portúgal Lest-Grikkland lest-SlóvenÃa Port Aventura Annað.Artsy Gallerý BegguNeopets -varúð..gæti verið addictive!) Leikir anyone? credits.design by xtrasiaopowered by TagBoard Message Board blog hosted by Blogger | |||
|
copyrights xtrasiao.inc 2004-2005 | |||||