Interrail 2006

tag.

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)


Undirstrikun þýðir að önnur manneskan er búin að redda hlutnum. Yfirstrikun þýðir að báðar eru búnar.
Pökkunarlistinn -workinprogress-
o BakpokaB & D
o 2 stuttbuxur
o 3 pör af sokkum
o 3 T boli
o 4 nærbuxur(WTF?!?!)
o 1 síðar buxur
o 2 langerma skyrtur/blússur
o 1 góða peysu
o Regn og vindjakka
o Sandala
o Lítinn Bakpoka
o Magatösku fyrir peningaB
o Handklæði
o Smá þvottaefni
o Vasahníf og dósaopnara
o Bolla, krús og skeið
o Varasalva
o Sólkrem
o Nál, tvinna og lítil skæri
o Talkúm
o Tannbursta, tannkrem, tannþráð
o Sjampó
o Magatöflur, verkjatöflur
o Klósettpappír
o Gjaldeyri, greiðslukort

o Vegabréf og ISIC/IYTC skírteiniðD
o Vasabók eða dagbók og penna
o Gott Evrópukort og ferðabók
o Myndavél og filmur
o Interrail kort
o Afrit af ferða- og slysatryggingu
o Hatt
o Flísteppi
o GuideBók Frá LonelyPlanet

Thursday, February 23, 2006

<begga>

Á morgun sækji ég um Svarta-kortið..eða..öllu heldur eftir 4klst... get bara ekki sofnað þrátt fyrir að ég er þreytt. Dagmar lemur mig örugglega í fyrramálið *embraces for impact*
Hef annars verið að hugsa út í ferðina eftir drama-samræður mínar við foreldra mína í gær. Auðvitað eru foreldrarnir dauðhræddir um að einhver morðingji á top10 lista FBI ráðist á varnalausa barnið þeirra, því það er pottþétt að löndin sem hún er að fara til eru hættulegustu lönd í heimi og ætti því ekki að koma nálægt þeim heldur fara í venjulega verð sem inniheldur eitt hótel, eina strönd og fleirra fólk. Enn þetta er mín ákvörðun eins og hann sagði . Eina sem við Dagmar getum gert til að róa þau (þau eru ekki alveg ánægð með að við förum bara tvær ) er að plana ferðina í þaular, lestir, hvar við gistum, fara ekkert út á kvöldin, blogga sem oftast, og að sjálfsögðu hringja annan hvern dag í þau til að láta vita að við drögum enn andan og erum ekki dauðar í einhverri hliðargötu.
Hef sjálf ekki farið neitt svona áður, annaðhvort með foreldrum eða með stórum hóp sem veitir mér öryggi. Að fara bara tvær er svona dálítið yfirþyrmandi og scary eitthvað. Eitthvað svona....stóru stelpulegt..and I don't feel like one i_i ..þrátt fyrir hrikalega hæð. Enn á sama tíma er ég svo spennt yfir að ferðast þangað, upplifa náttúruna, yndislegan arkitektúr og menningu! Furðulegt að vera hrædd OG spennt á sama tíma... á eftir að yfirbuga þennan ótta minn því ég mun bara enda föst inni í húsinu ef ég læt hann sigra mig.

So yeah... ætti í rauninni að koma með eitthvað að viti í þessa færslu..einhverja ferðaáætlun or something. enn höfum ekki komið neinu niður enn. Fáum útborgað næsta þriðjudag og þá verður keypt official Dagbók ferðarinnar þar sem flestar upplýsingar fara inn varðandi ferðinna, og mun virka vel þarna úti þar sem hægt erað skrifa götuheitið á hostelinu svo maður komist aftur tilbaka XD
Annars ætla ég sjálf að fara kíkja í kringum mig varðandi það sem vantar á pökkunarlistann...vantar stuttbuxur, skó,..og eiginlega flest :S
Og til að undirbúa líkama mann aðeins þá er áætlunin að komast aðeins í form og því ætla ég að kaupa mér svona stigadæmi eins og Hildur átti. Pínulítið stiga apparat sem færst í rúmfatalagernum á 2990kr..virkaði vel þann tíma sem hennar eintak endtist svo ég ætla að skella mér á eitt. Maður verður að komast í betri þjálfun ef maður á bera hlussu bakpoka í 22 daga o.O

Enn já..ætla að fara aðeins að byrja á "verkefnamöppu-skreytingunni" hennar Dagmar svo ég sé byrjuð í það minnsta ^_^;

Ciao

</begga>
Cilitra { 03:57 } 0 comments


Powered by Blogger

archives.

February 2006
March 2006
April 2006
May 2006
June 2006
July 2006
August 2006

Interrail

Hostel
Stúdentaferðir
Lestir í Evr.
EasyJet flug
British Airwaves flug
utanskríkisráðuneytið Lonely Planet
Lest-Ítalía
Lest-Spánn
Lest-Portúgal
Lest-Grikkland
lest-Slóvenía
Port Aventura

Annað.

Artsy Gallerý Beggu
Neopets -varúð..gæti verið addictive!)
Leikir anyone?

credits.

design by xtrasiao

powered by
TagBoard Message Board

blog hosted by
Blogger
copyrights xtrasiao.inc 2004-2005