Interrail 2006 | |||||
tag.
|
![]() Tuesday, February 28, 2006<begga>Febrúar er á enda og erum því nær ferðinni miklu! Í dag verður aaaansi busy dagur þar sem ég fer líklega að sækja Svarta-kortið mitt og sækja um isic-kort hjá stúdentaferðum þareftir, þurfum að kaupa LonelyPlanet -middeterranianhoweveryoupspellitbókina, kaupa dagbók þar sem allar vital/non-sovital info fer í, ásamt því að á næstu dögum erum við að fara panta flugið. Hefði átt að skrifa þetta niður einhverstaðar því ég er barasta vissss um að ég sé að gleyma einhverju...gleymi alltaf einhverju. Við Dagmar erum hafnar við að skipuleggja hvaða borgir við ætlum að heimsækja, hvaða lestir við þurfum að taka, og hvaða hluti við ætlum að skoða og gera. Erum byrjaðar að skoða skemmtigarða og vatsnrennigarða ;) og erum orðnar ansi spenntar yfir því, og erum sammála að við nennum líklega ekki að skoða leiðinleg listasöfn með málverkum..allaveganna ekki í þetta skipti. Svo þegar það kemur einn dag á hreint þá getum við reiknað út hvað allar þessar ferðir og aukakostnaður sé mikill svo maður verði ekki skíta-broke þarna úti :P og já.. VIÐ FÁUM ÚTBORGAÐ Í DAG!!!! </begga> Thursday, February 23, 2006Fyrir þá sem ekki skilja drulluhala dæmið farið á http://www.blog.central.is/leikur2005kv dagmar <begga>
Á morgun sækji ég um Svarta-kortið..eða..öllu heldur eftir 4klst... get bara ekki sofnað þrátt fyrir að ég er þreytt. Dagmar lemur mig örugglega í fyrramálið *embraces for impact* Hef annars verið að hugsa út í ferðina eftir drama-samræður mínar við foreldra mína í gær. Auðvitað eru foreldrarnir dauðhræddir um að einhver morðingji á top10 lista FBI ráðist á varnalausa barnið þeirra, því það er pottþétt að löndin sem hún er að fara til eru hættulegustu lönd í heimi og ætti því ekki að koma nálægt þeim heldur fara í venjulega verð sem inniheldur eitt hótel, eina strönd og fleirra fólk. Enn þetta er mín ákvörðun eins og hann sagði . Eina sem við Dagmar getum gert til að róa þau (þau eru ekki alveg ánægð með að við förum bara tvær ) er að plana ferðina í þaular, lestir, hvar við gistum, fara ekkert út á kvöldin, blogga sem oftast, og að sjálfsögðu hringja annan hvern dag í þau til að láta vita að við drögum enn andan og erum ekki dauðar í einhverri hliðargötu. Hef sjálf ekki farið neitt svona áður, annaðhvort með foreldrum eða með stórum hóp sem veitir mér öryggi. Að fara bara tvær er svona dálítið yfirþyrmandi og scary eitthvað. Eitthvað svona....stóru stelpulegt..and I don't feel like one i_i ..þrátt fyrir hrikalega hæð. Enn á sama tíma er ég svo spennt yfir að ferðast þangað, upplifa náttúruna, yndislegan arkitektúr og menningu! Furðulegt að vera hrædd OG spennt á sama tíma... á eftir að yfirbuga þennan ótta minn því ég mun bara enda föst inni í húsinu ef ég læt hann sigra mig. So yeah... ætti í rauninni að koma með eitthvað að viti í þessa færslu..einhverja ferðaáætlun or something. enn höfum ekki komið neinu niður enn. Fáum útborgað næsta þriðjudag og þá verður keypt official Dagbók ferðarinnar þar sem flestar upplýsingar fara inn varðandi ferðinna, og mun virka vel þarna úti þar sem hægt erað skrifa götuheitið á hostelinu svo maður komist aftur tilbaka XD Annars ætla ég sjálf að fara kíkja í kringum mig varðandi það sem vantar á pökkunarlistann...vantar stuttbuxur, skó,..og eiginlega flest :S Og til að undirbúa líkama mann aðeins þá er áætlunin að komast aðeins í form og því ætla ég að kaupa mér svona stigadæmi eins og Hildur átti. Pínulítið stiga apparat sem færst í rúmfatalagernum á 2990kr..virkaði vel þann tíma sem hennar eintak endtist svo ég ætla að skella mér á eitt. Maður verður að komast í betri þjálfun ef maður á bera hlussu bakpoka í 22 daga o.O Enn já..ætla að fara aðeins að byrja á "verkefnamöppu-skreytingunni" hennar Dagmar svo ég sé byrjuð í það minnsta ^_^; Ciao </begga> Tuesday, February 21, 2006Jæja þá er isic kortið komið í pöntun og væntanlegt í hús eftir nokkra daga. Begga ákvað að bíða aðeins með að fá sér kort, er ekki alveg búin að ákveða sig. Svo er það bara að bíða eftir útborgunardegi svo að við vitum alveg 100% að við getum pantað okkur flugið (ekkert voða sniðugt að panta flug ef maður á ekki pening fyrir því). Við erum búnar að finna okkur fínt flug og erum bara að vona að það verði ekki uppselt um mánaðarmótið. En við vonum að svo verði ekki og þá mun planið okkar líta svona út: 12. júlí - morgunflug til London, eyðum svo deginum í London og fljúgum morguninn eftir Madrid. Svo er það bara stanslaust fjör í 22 daga þar sem við flökkum um Spán, Portúgal, Ítalíu, Slóveníu og Grikkland. 3. ágúst verðum við svo að vera komnar aftur til Madrid þar sem við tökum kvöldflug til London, svo er það bara nótt á flugvellinum og fljúgum svo heim morguninn 4. ágúst. Það eru bara rúmir 4 mánuðir í þetta þannig að það er besta að byrja að plana og safna strax. Dagmar Cilitra { 15:34 }
4 comments
Mér finnst að þið eigið að taka mig með!
Fröken Potter
#
@ 16:00
þær voru búnar að spurja hovrt við vildum koma aulin þinn, hihi
#
@ 02:19
Já en það yrði miklu auðveldara ef þær myndu bara borga fyrir mig! Þá gæti ég bara safnað fyrir búferlisflutningunum okkar!Fröken Potter
#
@ 00:31
Mér finnst bara samt að þið eigið að koma!Byrjið strax að safna og hafið samt nægan tíma til að safna fyrir búferlisflutningunum! Síðsti séns til að íhuga ;)Post a Comment <begga>
Í dag ætlum við Dagmar að sækja um ISIC kreditKort sem við tökum með sem varakort meðan við erum að ferðast, og einnig borgum flugið svo við fáum ferðatrygginguna. Ég er sjálf enn í hugleiðingum þar sem ég get ekki fengið það í mínum banka sem er Landsbankinn. Hef samt verið að pæla að kannski dugar svarta kortið þar sem ég fæ isic afsláttarkort með. Er bara OF mikið vesen að fá kort í öðrum banka enn launareikningurinn manns er, svona ef maður lendir í smá skuld(semsagt eyðir aðeins meir enn maður á inn á bók) þá er svo mikið vesen að setja það á raðgreiðslur. Lenti í svoleiðis eftir útskriftarverslunarferðina og neita að lenda í svoleiðis aftur. -Note to Self- !!!!Vika í útborgun!!!! </begga> Monday, February 20, 2006<begga> Textinn hefur verið lagaður, tíminn stilltur og nú á bara eftir að hana einhverja skemmtilega mynd fyrir síðuna í stað sofandi ketlingsins. Er bara ansi stolt af að hafa komið þessi blogg upp svona snemma ^_^ þá getur maður komið niður á "blað" og á einn stað allar upplýsingar varðandi ferðina, ferðaleiðir, pökkunarlista, og svoleiðis hluti. Annars höfum við Dagmar ekki hætt að tala um þessa ferð frá því fyrir tveimur vikum síðan þegar það datt út úr mér að mig hefði alltaf langað eða öllu heldur forvitnast um bakpokaferð um evrópu. Hún næstum hoppaði af spennu og sagðist hafa dreymt um að fara í gvuuuuð veit hve langan tíma. Eftir það hefur spennan magnast, og undirbúningur farið á fullt og Dagmar ekki leyft mér að skipta um skoðun ;) Vorum alla helgina í vinnunni að tala um ferðina, hvað okkur vantaði, hvaða staði við vildum skoða etc hvenær sem tækifæri gafst. Og tilhugsunin að fara bara tvær er ekkert svo óhugnaleg....allaveganna þegar ég blocka allar þær scary staðreyndir um ferðalög sem foreldrar mínir hafa nelgt inn í hausinn minn(:"traveling alone from home is bad.. bad people are outside Iceland..fear it... be afraiiiiiid!") Við höfum ákveðið hvaða svæði við ætlum að taka og eru þau eftirfarandi Lönd:Spánn, Portúgal, Ítalía, Grikkland og Slóvenía í 22.daga. Tímabil: tvær seinni vikur júlí, fyrsta vika ágúst. Dagmar er með detaild upplýsingar varðandi flug sem ég býst við að hún hendi inn seinna í vikunni. Fundum nefnilega þetta ódýra flug þar sem við lendum í madrid og getum þá farið þaðan til Ítalíu og endum svo einhvernveginn aftur í madrid til að ná flugi heim. Svo ég hef ákveðið að henda inn tillögu að pökkunarlista sem við fundum á Exit.is. Svo við Dagmar getum haldið Utan um það sem er komið er ég komin með kerfi. Strikað verður yfir hluti, þeir sem við erum búin að redda fær bókstaf hvorrar manneskju fyrir aftan eftir því hver er búin að redda sér hverju. Enn svo eru hlutir á þessum lista sem við þurfum ekki og sá hlutur fær bara strik yfir sig og engann bókstaf fyrir aftan. B fyrir Beggu, D fyrir Dagmar...(duh) Pökkunarlistinn -workinprogress- o 2 stuttbuxur o 3 pör af sokkum o 3 T boli o 4 nærbuxur(WTF?!?!) o 1 síðar buxur o 2 langerma skyrtur/blússur o 1 góða peysu o Regn og vindjakka o Góða gönguskó o Sandala (fætur þurfa loft) o Lítinn Bakpoka o Magatösku fyrir peninga o o o Handklæði o Smá þvottaefni o Vasahníf og dósaopnara o Bolla, krús og skeið o Varasalva o Sólkrem og smokka o Nál, tvinna og lítil skæri o Talkúm (þú gengur mikið) o Tannbursta, tannkrem, tannþráð o Sjampó o Magatöflur, verkjatöflur o Klósettpappír o Gjaldeyri, greiðslukort o Vegabréf og ISIC/IYTC skírteinið o Vasabók eða dagbók og penna o Gott Evrópukort og ferðabók o Myndavél og filmur o Interrail kort o Afrit af ferða- og slysatryggingu o Kannski Línuskauta (ferð fljótar yfir) o Hatt!!!!(bætt við af Beggu) o Flísteppi(bætt við að Beggu) Svo eigum við eftir að ákveða nákvæmari lista sem hentar okkur og okkar svæðum best. Enn miðað við tímabilið sem við förum þá tel ég okkur þurfa stuttbuxurnar nauðsinlega þar sem ég held að júlí/ágúst sem eitt af heitari tíma sumarsins! SPurning svo hvað þetta verður allt þungt og svoleiðis. Við ætlum ekki að taka með okkur svefnpoka þar sem flest farfuglaheimili bjóða upp á herbergi með innf. svefnpoka og kodda, enn tökum með okkur flísteppi til öryggis. </begga> Cilitra { 14:39 }
3 comments
hæhæ stúlkur mínar og til hamingju með síðuna!!!!!:) ég segi bara það sama, hún Dagmar hefur ekki hætt að tala um þessa ferð síðan ég bara veit ekki hvenær!!!!! og við fáum að vita eitthvað nýtt á hverjum degi, sem er bara gaman. Enjá þessi innpökkunarlisti!! uhumm mæli með aðeins fleiri nærbuxum sko!!!! maður veit aldrei hvaða slys geta orðið heheh djók:)
#
@ 16:21
ákvað að gera ein færslu í viðbót því að Dagmar var svo spennt yfir hversu margir væru búinir að kommenta á nýju síðuna....hehe
#
@ 16:22
....hehehehe
#
@ 16:22
Post a Comment
Saturday, February 18, 2006Velkomin á Interrail2006 Blogg Beggu og Döggu.Við erum ekki að fara fyrr enn í júlí/ágúst enn þangað til fáið þið að heyra öskrin okkar og *squeee* spenningartóna okkar. Alls kyns undirbúningur og upplýsingsplön munu birtast hér sama hvort þið viljið það eða ekki :P |
archives.February 2006March 2006 April 2006 May 2006 June 2006 July 2006 August 2006 InterrailHostelStúdentaferðir Lestir à Evr. EasyJet flug British Airwaves flug utanskrÃkisráðuneytið Lonely Planet Lest-ÃtalÃa Lest-Spánn Lest-Portúgal Lest-Grikkland lest-SlóvenÃa Port Aventura Annað.Artsy Gallerý BegguNeopets -varúð..gæti verið addictive!) Leikir anyone? credits.design by xtrasiaopowered by TagBoard Message Board blog hosted by Blogger | |||
|
copyrights xtrasiao.inc 2004-2005 | |||||